þessi lifir :O (bara hlýtur að vera)

Já alltaf þarf ég að vera að stofna nýjar síður og alltaf eiga þær að ganga. En hingað til hefur það ekki verið raunin svo við sjáum bara til með þessa.  Reyndar þá er ákveðið vandamál við bloggið mitt. Það er ekki það að viljinn sé ekki til staðar eða að ég komist aldrei í tölvu eða eitthvað, nei vandamálið er að ég hef aldrei neitt að segja. Það bara kemur svo sjaldan eitthvað fyrir sem einhver hefur áhuga á að lesa að ég nenni ekki að standa í því að reyna að segja frá því. Og þar sem ég hef ekkert að segja á milli þessara "áhugaverðu" blogga þá hætta þessir fáu sem nenna að lesa bloggið mitt fyrir það fyrsta að tékka hvort eitthvað nýtt sé búið að gerast. En nú eru jólin og einhverra hluta vegna fékk ég þessa löngun til að létta á mínum haus hérna í gegnum lyklaborðið. Ég verð reyndar að viðurkenna að þó að þetta sé fyrsta bloggið þá er svolítill tími síðan ég stofnaði þessa síðu en það var bara til að ná einhverju allt í lagi nafni. Þá er ég sem sagt að tala um fyrri síður sem hafa til dæmis heitið baah, killerpotato, zebrakleinurnar og fleiri.

Allavega nú eru jól og á jólunum eru allir glaðir =) þar fá allir nýjar flíkur bæði fátækir og ríkir og þurfa ekki að lenda í jólakettinum. Já þetta var tekið úr einhverju skemmtilegu jólalagi sem er búið að söngla í hausnum á  mér seinustu daga. Vá mér tókst að tala tvisvar um hausinn á mér í sama blogginu =P

En já tilgangurinn með þessu bloggi var aðallega bara að óska öllum sem ég á eftir að benda á þetta blogg gleðilegra jóla =) ég vil einnig þakka fyrir frábærar gjafir :D 


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband